Svakalega langt síðan ég setti eitthvað hérna inn. Er búinn að vera í pásu og svo varð ég veikur sem lengdi pásuna ennþá lengur. En allavegana fór í rosalegan körfubolta með strákunum. Vorum í 2.5 tíma á fullu. Held að lið kvöldsins hafi verið ég, Helgi og Gulli. Tókum tvo svoleiðis leiki og það var bara djók þó að það hafi verið 3vs4. Spiluðum í heildina eitthvað um 8 leiki upp í 20.