Archive for júlí, 2008

25. júlí

júlí 28, 2008

Fór í Hreyfingu með Gulla

Upphitun 1km

Skábekkur 15×20. 10×40. 8×50, 5×60

Bekkur 12×20, 10×50. 4×60

Flug tók 3 sett.

Var allt of svangur þegar ég byrjaði og svo er líka langt síðan ég fór í ræktina. Skítsæmilegur árangur. Góðu fréttirnar eru samt að ég hef ekkert þyngst síðan ég tók brennslumánuðinn. Hugsanlega lést örlítið sem er gott mál

Matardagbók 10. júlí

júlí 11, 2008

Tvær og hálf brauðsneiðar með túnfisksalati. Frekar fínt brauð með ólífum. Ein kjúklingabringa, einn tómatur, tvær tortillakökur, sósa, powerade og ein appelsín í dós.

Hefði getað drukkið hollar þennan daginn.

Hreyfing 10. júlí

júlí 11, 2008

Fór út að hlaupa. Hringurinn sem ég fór um daginn var 2.2km fór töluvert lengri hring, ætli hann hafi ekki verið svona 3-3.5km, ætla að mæla hann um helgina og hafa það svona viðmiðið. Hefði getið hlaupið miklu lengra ef ég hefði verið betri í fætinum en er með sama verk og um daginn í vöðvafestingunni. Held að ég þurfi að hlaupa meira til að styrkja þetta ennfrekar.

Hreyfing 8. júlí

júlí 11, 2008

Fór í körfu, var ennþá meiddur í hendinni og gat því bara spilað í klukkutíma.

Hreyfing 7.júlí

júlí 8, 2008

Svakalega langt síðan ég setti eitthvað hérna inn. Er búinn að vera í pásu og svo varð ég veikur sem lengdi pásuna ennþá lengur. En allavegana fór í rosalegan körfubolta með strákunum. Vorum í 2.5 tíma á fullu. Held að lið kvöldsins hafi verið ég, Helgi og Gulli. Tókum tvo svoleiðis leiki og það var bara djók þó að það hafi verið 3vs4. Spiluðum í heildina eitthvað um 8 leiki upp í 20.